„Við vitum ekki enn hvað líkami okkar er fær um“ — Reykjavík Dance Festival er framundan!
Búið ykkur undir fimm daga hátíð, uppfulla af dásamlegum líkömum og stórkostlegri hreyfingu, óvæntum undrum og alls kyns uppákomum. Núorðið vita auðvitað allir að Reykjavík Dance Festival snýst um svo miklu meira en bara dans. En það verður samt nóg af dansi. Heill hellingur af dansi.
Við og vinir okkar hjá Lókal Performance Festival Reykjavík höfum tekið saman höndum enn á ný – sem er okkar eftirlætishefð – til að færa ykkur stærstu og trylltustu sviðslistahátíð Íslands.
13. - 17. nóvember næstkomandi mun brakandi ferskt listafólk, þjóðargersemar og alþjóðlegar stórstjörnur taka yfir svið og almannarými Reykjavíkur. Hvort sem þið elskið dans, starfið við dans eða eruð einfaldlega forvitin þá verður eitthvað í boði fyrir alla!