Bjo%25CC%2588rgvin_Sigur%25C3%25B0arson_%25C2%25A9_Li%25CC%2581kaminn_er_Ska%25CC%2581l-45.jpg

Líkaminn er skál

Helga Arnalds + Matteo Fargion (IS/UK)
LÍKAMINN ER SKÁL
Miðvikudagur 13. nóvember 18:30 - 19:30
Tjarnarbíó

2900 ISK
Aðgengi: Tjarnarbíó er með hjólastólaaðgengi, sýningin er táknmálstúlkuð

Rauði þráður sýningarinnar Líkaminn er skál er endurtekningin og kerfin sem eru allt í kringum okkur og inni í okkur. Hjartslátturinn, öndunin, frumurnar, takturinn í deginum, takturinn í náttúrunni, að við vöknum, burstum tennurnar og fáum okkur kaffi. Sýningin byggir á tilfinningunni sem kemur í kjölfar þess að takturinn í þessum kerfum fer úr jafnvægi. Þetta getur verið þegar við missum ástvin, heilsuna eða  eldgos brýst upp í bakgarðinum. Eitthvað gerist sem kippir jörðinni undan fótum okkar og breytir öllu sem á eftir kemur. Allt sem okkur hefur fundist gefið er ekki eins og það var. Sumarið kemur ekki lengur á eftir vorinu. Frumur líkamans missa taktinn og fara á yfirsnúning. Að vera á lífi er skyndilega ekki sjálfgefið. Allt í einu er áþreifanlegt hvernig eitt andartak getur breytt öllu. En mitt í þessari óvissu og óreiðu fæðist eitthvað alveg nýtt. 
Sýningin verður á ensku og táknmálstúlkuð.

Að sýningu lokinni verður boðið upp á lifandi listamannaspjall með listræna teyminu.
Þetta er einstakt tækifæri til að fá innsýn í sköpunarferlið, hugmyndirnar á bak við sýninguna og það sem hefur mótað hana. Spjallið fer fram í afslöppuðu andrúmslofti á kaffihúsi Tjarnarbíó.
Samhliða spjallinu verður haldin skapandi leirstund, þar sem gestir geta sjálfir prófað að vinna með leirinn og jafnvel skapað sína eigin skál. Hvernig myndir þú tjá líkama þinn í formi skálar?

​​Leikhópurinn 10 fingur hefur um árabil sérhæft sig í listsköpun á mörkum leikhúss og myndlistar. Hópurinn hefur unnið með mismunandi efni í fyrri sýningum sínum, eins og pappír, plast eða mold og rannsakað ólíka eiginleika þeirra og eðli og hvernig megi gefa þeim líf með hreyfingu og líkamstjáningu. Í sýningunni Líkaminn er skál tekst hópurinn á við leir en blandar nú aðferðum sínum saman við aðferðafræði sviðslistmannsins Matteo Fargion, sem er annar aðal höfundur sýningarinnar. Aðferðafræði hans byggir á ákveðnum formúlum úr tónsmíðum sem eru yfirfærðar á hreyfingu og líkamstjáningu og á því mjög vel við vinnuaðferðir leikhópsins 10 fingur. Líkaminn er skál er fyrir fullorðna ólíkt fyrri verkum hópsins. 

 
 
 
 

Flytjendur: Helga Arnalds, Valgerður Rúnarsdóttir
​Höfundar: Helga Arnalds, Matteo Fargion
Meðhöfundar: Eva Signý Berger, Valgerður Rúnarsdóttir
Leikmynd og búningar: Eva Signý Berger, Helga Arnalds
Myndbönd: Helga Arnalds, Eva Signý Berger
Kóreógrafía: Matteo Fargion í samstarfi við Helgu Arnalds og Valgerði Rúnarsdóttur
Textar: Helga Arnalds, Valgerður Rúnarsdóttir, Eva Signý Berger
Tónlist:  Matteo Fargion
Sönglög:  Fransesca Fargion
Hönnun lýsingar: Ólafur Ágúst Stefánsson
Framleiðsla: 10 fingur & Murmur Productions
Grafísk hönnun: Úlfur Arnalds
Mynd á plakati:  Margrét Seema Takyar
Myndir úr sýningu: : Björgvin Sigurðarson


2900 ISK
Access: Tjarnarbíó has wheelchairaccess, the performance is sign language interpreted.

Helga Arnalds + Matteo Fargion (IS/UK)
MY BODY IS A BOWL
Wednesday 13th November 18:30 - 19:30
Tjarnarbíó

 

The systems all around us and inside us, like the heartbeat, breathing, splitting of the cells, the rhythm of the day, the rhythm of nature, the habit of waking up, brushing our teeth, and having coffee, all of these repetitions are the triggers for the performance The body is a bowl and especially when the rhythm in these systems goes out of balance. This can be when we lose a loved one, our health, or a volcanic eruption breaks out in our backyard. Something happens that shakes the ground from under our feet and changes everything that follows. Everything we have felt given is not what it was. Summer no longer comes after spring. The body's cells lose their rhythm and go into overdrive. Being alive is not a given anymore. Yet in this uncertainty, something completely new is born. My body is a bowl abstractly addresses the subject in a non-linear narrative, expressing physical experience through clay and rhythm.
The performance will be in english and with sign language interpretation.

After the performance, there will be a live artist talk with the creative team. This is a unique opportunity to gain insight into the creative process and what has shaped it. The talk will take place in a relaxed atmosphere at the Tjarnarbíó café.
Alongside the talk, there will be a creative clay session, where guests can try working with clay themselves and even create their own bowl. How would you express your body in the form of a bowl?

Performers: Helga Arnalds, Valgerður Rúnarsdóttir
Creators: Helga Arnalds, Matteo Fargion
Co-creation: Eva Signý Berger, Valgerður Rúnarsdóttir
Stage and costume design: Eva Signý Berger, Helga Arnalds
Video: Helga Arnalds, Eva Signý Berger
Choreography: Matteo Fargion í samstarfi við Helgu Arnalds og Valgerði Rúnarsdóttur
Texts: Helga Arnalds, Valgerður Rúnarsdóttir, Eva Signý Berger
Music:  Matteo Fargion
Songs:  Fransesca Fargion
Lightdesign: Ólafur Ágúst Stefánsson
Production: 10 fingur & Murmur Productions
Graphic design: Úlfur Arnalds
Photo on poster:  Margrét Seema Takyar
Photos from performance: Björgvin Sigurðarson

The performance group 10 Fingers have for years specialized in performances on the border of theater and visual art. The group worked with different materials in their previous performances, such as paper, plastic, or soil, studying their nature and how to give them life on stage through movement and body language. In the performance My Body is a Bowl, the group is working with clay. This time mixing its methods with the methodology of stage artist and composer Matteo Fargion, who brings certain formulas from music composition and transfers them to movement and choreography which fits very well with the working methods of 10 fingers. My Body is a Bowl is a performance for adults, unlike most of the group's previous works